

Heimanámskeið, mótaðu þitt eigið skart
Eitt heimakitt er fyrir einn silfurgrip.
- Innifalið: Verkfæri og efniviður til að móta þitt fullkomna skart. Verkfærin á að skila eftir notkun. Einn silfur gripur (hringur, men eða eyrnalokkar)
- Tungumál: Íslenska
- Getustig: Byrjendur og lengra komna.
Á þessu námskeiði ert þú listamaðurinn þar sem þú mótar þinn eigin hring eða hálsmen með vaxi. Við fylgjum aðferð sem kallast "Lost Wax Casting" eða vaxmótum. Vaxið er ekki eins og venjulegt kertavax, heldur sérhannað fyrir vaxmótun. Aðferðin er þúsund alda gömul, í nútímavæddum búningi. Eftir námskeiðið tekur Lilja gripinn og býr til steypumót og hellir bræddu 925 silfri ofan í mótið. Steypuferlið tekur tvo daga, eftir það slípar Lilja gripinn og pússar upp. Við bjóðum einnig upp á að gullhúða gripinn með 18 karata gullhúðun. Bóka þarf þá miðann“ Mótaðu þitt skart - silfur með 18 karata gullhúðun". Námskeiðið er það sama en ef þú ert óviss um hvort þú viljir gullhúðun er hægt að kaupa hana auka eftir að skartið er klárt. Gjald fyrir gullhúðun er 5000 kr.
Innifalið:
Í heimakittinu færðu allt sem þarf til þess að móta skart með vaxmótun. Einnig fylgir með kennslumyndband og leiðbendingar. Kosturinn við heimakittið er að þú getur tekið þinn tíma í að móta þitt skart og æft þig. Það er hægt að hafa líka samband við Lilju ef það vantar einhverja auka aðstoð eða spurningar.
ATH að öll verkfærin sem fylgja með eru aðeins í láni og þarf að skila tilbaka.
Ef þú ert útá landi og pantar heimakittið, getur tekið 2-5 virka daga að fá afhent. Eftir að þú sendir heimakittið með vaxmótuðu skartinu tilbaka, tekur yfirleitt 3-8 vikur í að við fáum það afhent. Gott er því að panta með góðum fyrirvara ef það þarf til dæmis að fá heimakittið fyrir ákveðið tilefni/dag.
Það er aðeins hægt að hafa heimakittið hjá sér í tvær vikur, ef þú ert úti á landi þá byrjar tíminn að teljast þegar heimakittið er komið á þína Droppstöð.
Við biðjum því fólk að virða þann tíma, einnig verkfærin sem fylgja heimakittinu.
Það á að skila öllu tilbaka nema afgangsvaxi og kertinu sem fylgir með.
Eitt heimakitt er fyrir eitt vaxmódel sem verður steypt í 925 silfur.
Afhendingartími:
Það tekur 3-8 vikur að fá skartið tilbúið eftir að vaxmótunun hafi verið afhent. Yfirleitt getum við sagt sirka tíman eftir að vaxmótunun hefur verið skilað.
ATH:
Fá eintök í boði í kringum þær vikur sem námskeið eru í boði.
Choose options


Featured product






Icelandic art and print.
Cards for gift giving, for these special moments. The artist behind the cards is Sædís Harpa.
Sædís Harpa Stefánsdóttir is an artist and a photographer based in Iceland. She has a Master's degree in Art Education from the University of Iceland. Her current occupation is teaching art and music alongside being an independent artist. Sædís's work revolves around capturing the beauty in everyday moments and celebrating the often-overlooked details of life."
Size: 10cm x 15cm / A5
Do you need us to write your special message on the card? Please write the text in Notes with your order at checkout.
Pickup available at Shop location
Usually ready in 24 hours

Moments Cards
Flower card
Shop location
Laugavegur 72
101 Reykjavík
Iceland
